Yin Yoga / Yoga Nidra

6. vikur

Hefst 11. október

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 13:30-14:20

YIN YOGA/YOGA NIDRA hóptími er kenndur í notalegum og hlýlegum sal hjá okkur í Endurheimt.

Námskeiðið hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Engin krafa er gerð á að vera í góðu líkamlegu formi en æskilegt að mæta þó í þægilegum fötum og þátttakendur beðnir um að mæta ekki með ilmefni, eða með sterka lykt af fötum eftir þvottaefni.

Tíminn hefst með YIN YOGA æfingum þar sem gerðar eru rólegar æfingar þar sem áherslan er að auka liðleika og mýkja upp líkamann. Í tímunum gefst gott tækifæri á að líta inná við halda ákveðnum stöðum í eina til þrjár mínútur. Allir tímarnir enda á leiddri YOGA NIDRA slökun.

Kennari: Ragna Ingólfsdóttir YOGA kennari og YOGA NIDRA kennari, Ragna er margfaldur íslandsmeistari í Badminton og tvöfaldur ólympíufari og hefur mikla reynslu í að þjálfa bæði huga og líkama.


Einfaldasta útskýringin á orðinu yoga er ‘sameining huga og líkama’.

Yoga Nidra er djúpslökunaraðferð sem gengur út á að þjálfa með sér hæfileikann til að hvílast með fullri meðvitund. Yoga nidra er leidd hugleiðsla – jógískur svefn og áreynsluslaus slökun. Kennari leiðir stundina á meðan við liggjum og njótum. Á meðan stundin varir lærum við að draga athygli okkar inn á við, og flæða á milli svefns og vöku, þar sem líkami okkar finnur sína náttúrulegu leið til heilunar og jafnvægis.

Í nútímasamfélagi er endurnærandi hvíld ekki sjálfsögð og oft fylgir mikil streita hversdeginum. Flest höfum við lesið eða heyrt um varnarviðbrögðin ‘að hrökkva, stökkva eða frjósa’. Þetta eru frummannleg viðbrögð sem við grípum til þegar við þurfum að bregðast við hættu eða streitu.

Ef streitan nær ákveðnu hámarki umhverfis okkur, og mögulega líka innra með okkur, festumst við í þessum varnarviðbrögðum og náum ekki endurnærandi hvíld. Jafnframt náum við ekki að dvelja í núvitund. Þegar okkur skortir hvíld og núvitund sljóvgast dómgreindin og þar með verður líklegra að við túlkum fleira í umhverfi okkar sem streituvaldandi og ástandið margfaldast. Streita kallar á meiri streitu og ástandið getur orðið langvarandi og krónískt. Þetta getur haft slæm áhrif á aðra þætti heilsunnar, og geta samverkandi þættir og getuleysi líkamans til að vinna úr áreiti ýtt undir ákveðin snjóboltaáhrif. Eins getur síendurtekin bráðastreita eða skyndisleg áföll ýtt taugakerfinu okkar yfir brúnina, og lengt og skert leiðir líkama og hugar til endurheimtar.

Ef þú átt erfitt með að ná hugarró, eða átt það til að vakna óendurnærð/ur, eru miklar líkur á að þú náir ekki að brjótast úr vítahringnum án aðstoðar. Ástæðan fyrir að Yoga Nidra hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum er vegna gagnsemi aðferðarinnar og hversu einföld hún er. Regluleg ástundun á yoga nidra er talin hjálpa til við endurnýjun fruma og eykur blóðflæði, sem og róar huga og leyfir vöðvum og stoðkerfi að slaka á. Einnig getur ástundun bætt úr svefnvandamálum og aukið svefngæði, aukið sjálfsmat, hjálpað til við að minnka kvíða, þunglyndi eða orkuleysi.

Námskeiðið miðar að því að innleiða aðferðir Yoga Nidra inn í hversdag þátttakenda. Þess vegna munum við skoða heildrænt hvað stuðlar að betri hvíld innra með okkur, bæði sameiginlega en einnig á okkar eigin forsendum, í okkar nær- og heimaumhverfi. Við lærum að setja líkamann og hugann í langþráða hvíld og ná endurheimt, í gegnum þá slökun sem þarf fyrir líkamann til að núllstilla sig, jafnvel umkringd þeim áskorunum og því áreiti sem við tökumst á við daglega. Eftir námskeiðið hafa þátttakendur aukið færni sína í djúpri slökun og núvitund, öðlast tól til að takast á við daglega streitu, álag og áreiti, og styrkja öndun, taugakerfi og hormónakerfi. Allt hjálpar ofangreint við að takast á við hvers konar áskoranir, hvort sem er lágskammtaáreiti eða langvarandi krónísk veikindi, eða enn alvarlegri kvilla, síendurtekin áföll eða sjúkdóma.

Innifalið í grunnnámskeiði er aðgangur að glæsilegu innra neti, með daglegum stuðning, fyrirlestrum, fræðslumolum, uppskriftabók með vikumatseðli / innkauparlista.


Grunnnámskeið

6. vikur – 41.200kr 

7-10 í hóp

Áskriftaleiðir

Þegar grunnnámskeiði lýkur getur þú skráð þig í mánaðaráskrift og haldið áfram að njóta.

1 mánuður – 24.900 kr. pr/mán.

 

Aðgangur að notendavænu innra neti með fræðslu og stuðningi

  • Dagsverkefni í 36 daga til að innleiða heilbrigðar venjur án öfga
  • Daglegur fræðslumoli
  • Fyrirlestur um meltinguna og ónæmiskerfið
  • Fyrirlestur um bólguhemjandi mataræði
  • Fyrirlestur um umhverfisþætti sem hafa áhrif á heilsuna
  • Fyrirlestur um streitu og leiðir til að innleiða strax
  • Fyrirlestur um svefn bættar svefnvenjur
  • Uppskriftabók með vikumatseðli ásamt innkaupalista
  • Hljóðupptökur af hugleiðsu/slökunaræfingum
  • Myndbandsupptökur af 10-20 mín. öruggum heimaæfingum frá sjúkraþjálfara
  • Fræðsla um bætiefni

Vinsælustu námskeiðin

  • Bætt melting – Einstök heilsa

    Skoða nánar
  • Physio FIT

    Skoða nánar
  • Fjarþjálfun – símtöl frá sjúkraþjálfara

    Skoða nánar
  • Yin Yoga / Yoga Nidra

    Skoða nánar