Infra-rauð meðferð

Árangursrík meðferð til að auka blóðflæði og opna á sogæðakerfið.

Infra-rauð meðferð hefur reynst mörgum góð verkjastilling.

Hvernig fer tíminn fram:

Þú færð aðgang að infra rauðum „einka“ klefa sem þú situr inní og leyfir þreytunni að líða úr þér í 20-45 mín. Klefinn hitnar mjög vel (74°) og þú mátt búast við að byrja að svitna eftir um 20 mínutur.

Best er að leyfa líkamanum að halda áfram að hitna eftir meðferðina í um 45 mín til að hámarka virknina. Það er þó sturta til staðar fyrir þá sem vilja skella sér í kalda sturtu eftir hitann.

Best er að vera í sundfötum í klefanum og þú kemur sjálf(ur) með handklæði ef þú vilt skella þér í sturtu.

Öruggur klefi fyrir umhverfisveika!

Klefinn er undir EMF mörkum (rafsegulmengun) og viðurinn sem notaður er í klefann ertir ekki fólk með er með efnaóþol.

Verð:

5 tíma kort: 6.500kr

10 tíma kort: 10.000kr

Hægt er að bóka tíma í klefann frá kl. 9:00-16:00 alla virka daga.

Tímabókanir í síma 565-5500